Romans 10

1Bræður, það er hjartans ósk mín og bæn til Guðs, að þeir megi hólpnir verða. 2Það ber ég þeim, að þeir eru kappsfullir Guðs vegna, en ekki með réttum skilningi. 3Með því þeir þekkja ekki réttlæti Guðs og leitast við að koma til vegar eigin réttlæti, hafa þeir ekki gefið sig undir réttlæti Guðs. 4En Kristur er endalok lögmálsins, svo að nú réttlætist sérhver sá, sem trúir. 5Því að Móse ritar um réttlætið, sem lögmálið veitir: ,,Sá maður, sem breytir eftir lögmálinu, mun lifa fyrir það.`` 6En réttlætið af trúnni mælir þannig: ,,Seg þú ekki í hjarta þínu: Hver mun fara upp í himininn?`` _ það er: til að sækja Krist ofan, _ 7eða: ,,Hver mun stíga niður í undirdjúpið?`` _ það er: til að sækja Krist upp frá dauðum. 8Hvað segir það svo? ,,Nálægt þér er orðið, í munni þínum og í hjarta þínu.`` Það er: Orð trúarinnar, sem vér prédikum. 9Ef þú játar með munni þínum: Jesús er Drottinn _ og trúir í hjarta þínu, að Guð hafi uppvakið hann frá dauðum, muntu hólpinn verða. 10Með hjartanu er trúað til réttlætis, en með munninum játað til hjálpræðis. 11Ritningin segir: ,,Hver sem trúir á hann, mun ekki til skammar verða.`` 12Ekki er munur á Gyðingi og grískum manni, því að hinn sami er Drottinn allra, fullríkur fyrir alla þá sem ákalla hann; 13því að ,,hver sem ákallar nafn Drottins, mun hólpinn verða.`` 14En hvernig eiga þeir að ákalla þann, sem þeir trúa ekki á? Og hvernig eiga þeir að trúa á þann, sem þeir hafa ekki heyrt um? Og hvernig eiga þeir að heyra, án þess að einhver prédiki? 15Og hver getur prédikað, nema hann sé sendur? Svo er og ritað: ,,Hversu fagurt er fótatak þeirra, sem færa fagnaðarboðin góðu.`` 16En þeir hlýddu ekki allir fagnaðarerindinu. Jesaja segir: ,,Drottinn, hver trúði því, sem vér boðuðum?`` 17Svo kemur þá trúin af boðuninni, en boðunin byggist á orði Krists. 18En ég spyr: Hafa þeir ekki heyrt? Jú, vissulega, ,,raust þeirra hefur borist út um alla jörðina og orð þeirra til endimarka heimsbyggðarinnar.`` 19Og ég spyr: Hvort skildi Ísrael það ekki? Fyrst segir Móse: ,,Vekja vil ég yður til afbrýði gegn þjóð, sem ekki er þjóð, egna vil ég yður til reiði gegn óviturri þjóð.`` 20Og Jesaja er svo djarfmáll að segja: ,,Ég hef látið þá finna mig, sem leituðu mín ekki. Ég er orðinn augljós þeim, sem spurðu ekki að mér.`` 21En við Ísrael segir hann: ,,Allan daginn breiddi ég út hendur mínar móti óhlýðnum og þverbrotnum lýð.``
Copyright information for Icelandic